Snjóbolta­smákökur sem bráðna í munninum

Þessar snjóboltasmákökur eru vinsælar um allan heim og margar uppskriftir eru til en hér er sú sem mér þykir best. Ég bæti alltaf við súkkulaði í mína uppskrift því eins og við vitum er flest betra með smá súkkulaði. Þessar kökur eru mjög léttar og hreinlega bráðna í munninum eins og snjór. Það er snilld að eiga þessar í frystinum og bjóða sem eftirrétt með góðu kaffi eða glasi af kampavíni._dsc4115 _dsc4137

Snjóboltasmákökur sem bráðna í munninum
Dásamlegir og bragðgóðir snjóboltar.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 1 bolli mjúkt smjör
  2. 1/2 bolli flórsykur
  3. 1 tsk kókos-, möndlu- eða vanilludropar
  4. 2 1/4 bolli hveiti
  5. 1/2 tsk salt
  6. 1 poki súkkulaðidropar Konsum
  7. Flórsykur
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofninn í 180 gráður.
  2. Setjið smjörið, kókos-, möndlu- eða vanilludropana og flórsykur í hrærivélarskál og látið blandast vel saman, eða þar til blandan er létt og ljós.
  3. Bætið hveitinu og saltinu saman við og hrærið vel saman.
  4. Bætið súkkulaðidropum í deigið og blandið saman með sleif.
  5. Mótið eina msk af deigi í kúlu og setjið á smjörpappír.
  6. Bakið í 10-15 mínútur eða þar til botninn er orðinn örlítið gylltur.
  7. Látið kökurnar kólna og veltið svo upp úr flórsykri, ég velti þeim alltaf aftur rétt áður en þær eru bornar fram.
Athugasemdir
  1. Ég gerði þessar einu sinni með handþeytara og það er í eina skiptið sem þær heppnuðust ekki. Mín regla er að þegar smjörinu og flórsykrinum er hrært saman er betra að láta vélina hræra aðeins meira en minna.
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *