Amerískar pönnukökur

Amerískar pönnukökur

Við vinkonurnar elskum bröns og notum gjarnan helgarnar til að hittast ásamt mökum og börnum. Brönsinn þarf ekki að vera flókinn og oft á tíðum hittumst við á veitingastöðum sem bjóða upp á góðan bröns eða dögurð eins og það kallast víst á íslensku. Þegar gera á vel við sig er einum skammti af pönnukökum skellt á borðið í lokinn og allir fá bita. Himneskt! Þessar pönnukökur eru "fullorðins" og er uppskirftin komin frá Lucasi okkar á Coocoo's Nest.

[caption id="attachment_778" align="aligncenter" width="2352"]

DSC_4716

Það er líka mjög gott að skera niður banana og setja útí deigið þegar það er komið á pönnuna.[/caption]

1 1/2 bolli hveiti
3 tsk lyftiduft
1 tsk salt
2 tsk kanil
1 msk púðursykur
1 1/4 bolli möndlumjólk
1 egg
3 msk bráðið smjör

Heimagert pönnuköku sýróp
Disaranno Amaretto líkjör
2 msk smjör
Salt
Sýróp eða hunang

Setjið 3 skot af Disaranno líkjör á pönnu, hitið við vægan hita og bræðið svo 2 matskeiðar af smjöri saman við. Bætið við hnífsoddi af salti og 3 matskeiðum af sýrópi eða hunangi. Fullkomin óhollusta! Það má stundum. Og í guðs bænum ekki eyðileggja hamingjuna með samviskubiti. Það geri ég alltof oft.


Mynd: Íris Ann

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.