Appelsínu og ostaköku jólaboltar


Þessir jólaboltar eru mjög einfaldir, ódýrir og bragðgóðir. Það þarf ekki að baka þá og tekur lítinn tíma að gera. Aðeins þarf fjögur hráefni í þessa bolta og leynihráefnið í þessa jólabolta er gamla góða ískexið frá nöfnu minni Lindu. Auðvitað má nota annað kremkex en það er svo dásamlegt bragð sem kemur af ískexinu sem passar fullkomlega með appelsínusúkkulaðinu og möndlusmjörinu.
Uppskriftin
Appelsínu og ostaköku jólaboltar
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Ískex, rjómaostur og möndlusmjör sett saman í matvinnsluvél og blandað vel saman, eða þar til það er eins og deig
- Mótið litla bolta og setjið í kæli
- Bræðið súkkulaðið og dýfið boltunum í og setjið á bökunarpappír
- Kælið og njótið
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/12/appelsinu-og-ostakoku-jolaboltar/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.