Berja- og rabarbarapæ

Þessi uppskrift er og verður alltaf í uppáhaldi, því hægt er að breyta uppskriftinni eftir hentugleika og því sem til er hverju sinni og leika sér með hvaða ber eru notuð í bökuna. Þetta er þó besta samsetning sem ég hef gert og hún er ákaflega sumarleg og bragðmikil. Hún er matarmikil og dugar því fyrir gott matarboð, saumaklúbb eða annan skemmtilegan mannfögnuð. Gott er að bera hana fram með ís, þeyttum rjóma, sýrðum rjóma eða kókosrjóma. Það sem er sérstaklega þægilegt er að hægt að gera hana áður en boðið hefst sem getur sparað manni mikinn tíma.
[caption id="attachment_3052" align="aligncenter" width="800"]

Mynd frá TM[/caption]
Toppur:
2/3 bolli haframjöl
2/3 bolli heilhveiti
1/3 bolli púðursykur
1/2 tsk. kanill
1/2 tsk. salt
90 g smjör, kalt skorið í litla bita
Fylling
2 epli, pink lady
2 stönglar rabarbari
1/2 bolli bláber
1/2 bolli brómber
Safi úr 1/2 appelsínu
1/3 bolli sykur
Gerið deigið fyrst.
Blandið öllum þurrefnum saman og klípið smjörið saman við blönduna, þar til þurrefnin hafa blandast smjörinu alveg. Geymið í kæli meðan fylling er gerð.
Skrælið og skerið eplið í bita og setjið í skál, saxið rabarbarann í bita og bætið saman við. Blandið rest af berjum, sykri og safa úr appelsínu og hrærið. Hellið blöndunni í eldfast mót sem búið er að smyrja með smjöri.
Myljið deigið yfir og dreifið jafnt, bakið í forhituðum ofni við 180 gráður í 40 - 50 mínútur eða þar til bakan er fallega gyllt.
Þessi mun færa ykkur sól, gleði og hamingju :)



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.