Bláberja "nicecream"

Fara í uppskrift
Bláberja "nicecream"

"Nicecream" eða rjómalaus ís sem gerður er úr frosnum ávöxtunum er einstaklega bragðgott millimál eða sem eftirréttur. Ekki er verra að börnin elska bragðmikinn og sætan ísinn. Ef þú átt ekki öflugan blandara á borð við Vitamix er betra að nota matvinnsluvél í ísgerðina og jafnvel frysta ísinn í 20 mín áður en hann er borðaður. Það er að segja ef hann er ekki nægilega stífur eftir blöndun.

Uppskriftin

Bláberja Nicecream

Sætur og ljúfur berjaís handa allri fjölskyldunni.

Skammtar
2

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Settu öll innihaldsefnin í blandara eða matvinnsluvél. Byrjaðu á að setja aðeins 1 dl af mjólk en ef það dugar illa bættu þá smám saman við meiri vökvað.
  2. Látið matvinnsluvélina ganga á fullum styrk en stoppaðu reglulega til að skafa niður meðfram hliðunum.
  3. Smakkaðu til með stevíunni.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.