Bragðmiklar ítalskar kjötbollur

Fara í uppskrift
Bragðmiklar ítalskar kjötbollur

Ég elska ítalskan mat og sérstaklega kjötbollur. Ég hef reglulega breytt uppskriftinni en hér er hún loks fullkomnuð. Bragðmikil með vott af basil, sítrónuberki og furuhnetum. Eintóm sæla - fitulitlar og próteinríkar kjötbollur!

Gott rauðvín er einnig must! Með þessu er æðislegt að hafa gott ítalskt vín á borð við Mezzacorona Merlot. Þá sjaldan að maður finnur fínt rauðvín á 1.699 kr!

Uppskriftin

Ítalskar kjötbollur

Dásamlegar bragðmiklar kjötbollur í hollari kantinum. Um að gera að gera tvöfaldan skammt og frysta þessi bjútí.

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Saxið laukinn smátt og merjið hvítlaukinn í hvítlaukspressu. Setið í skál ásamt hakkinu, basilikunni, parmesanostinum, sítrónuberkinum, brauðraspinu, furuhnetunum og kryddinu. Saltið og piprið.
  2. Setjið eggið út í og hnoðið vel saman með höndunum.
  3. Mótið litlar bollur og veltið þeim upp úr heilhveiti svo þær loði betur saman. Setjið bollurnar á bökunarpappír og sáldrið örlítilli ólívuolíu yfir ef vill.
  4. Bakið bollurnar í miðjum ofni á 180 gráðum í 20-30 mínútur, eftir stærð.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.