Brjálæðislega einfalt Oreo konfekt

Fara í uppskrift
Brjálæðislega einfalt Oreo konfekt

Þessi uppskrift er fljótleg og það má vel leika sér með hana, breyta og bæta, t.d. með því að nota aðrar tegundir af Oreo kexi. Ég hef til dæmis notað Oreo kex með berjakremi sem var dásemd og notað mismunandi súkkulaði til að hjúpa með. Það líka til ýmsir litir í hjúpsúkkulaði sem gaman er að nota en oftast myl ég meira af kexi og skreyti kúlurnar með því þegar búið er að hjúpa. Molarnir eru eins og fullkomið afkvæmi Oreo og ostaköku! Ég tók þessa gleðibolta með mér í vinnuna og bauð samstarfsfélögum mínum upp á. Viðbrögðin stóðu ekki á sér og ég var strax rukkuð um uppskriftina. Njótið!

_DSC8352
_DSC8357
_DSC8371

Uppskriftin

Brjálæðislega einfalt Oreokonfekt

Einfalt og dásamlega gott konfekt fyrir alla sem elska ostakökur og Oreokex.

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Brjótið kexið í matvinnsluvél og maukið þar til kexið er orðið að dufti.
  2. Bætið við rjómaosti og blandið saman við þar til blandan er orðin að deigi.
  3. Búið til kúlur í þeirri stærð sem þið óskið og kælið.
  4. Bræðið súkkulaðið og dýfið köldum kúlum í og setjið á smjörpappír og skreytið.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.