Brownies með saltri karamellu

Í þessum syndsamlega góðu bitum er allt sem mér finnst gott í kökum. Suðusúkkulaði, sölt karamella og pekanhnetur. Þessar elskur stoppa stutt við og ég er ansi oft beðin um uppskriftina. Það þarf ekkert að ræða þessar elskur neitt frekar. Salt, súkkulaði og karamella! Herre gud!
Uppskriftin
Brownies bitar með saltri karamellu og pekanhnetum
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Karamella
Aðferð
- Bræðið súkkulaðið og smjörið yfir vatnsbaði og setjið svo til hliðar.
- Þeytið eggin og sykurinn vel saman þar til blandan er fallega ljósgul.
- Bætið þurrefnum saman við.
- Hellið súkkulaðiblöndunni útí og blandið rólega en vel saman.
- Hellið í ferkantað mót sem búið er að smyrja vel.
- Bakið í 15 mínútur við 180 gráðu hita, dreifið söxuðu hnetunum yfir heitu kökuna og hellið svo karamellunni yfir og bakið aftur í 15 mínútur.
Karamella
- Setjið smjör og púðursykur saman í pott og hrærið stanslaust þar til falleg karamella fer að myndast.
- Bætið þá saltinu og rjómanum út í og hrærið vel saman.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/01/brownies-bitar-med-saltri-karamellu-og-pekanhnetum/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Getur verið að það vanti sykur í innihaldsefni?
Hversu mikinn sykur er þeyttur við eggin?
Sælar Það er 3 dl sykur, afsakið þetta ;) Gerist ekki aftur Kv. Linda
Hversu stórt form? :) kkv.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.