Detox-súpa grasalæknisins

Fara í uppskrift
Detox-súpa grasalæknisins

Ásdís Einarsdóttir grasalæknir er mörgum kunn fyrir heilsusamleg afrek sín en hún kennir reglulega námskeið, rekur sína eigin stofu og miðlar heilsumætti jurta um víðan völl. Ásdís er mikil talskona þess að hreinsa líkaman reglulega en á fimmtudaginn verður hún með námskeið í hreinsun í Gló Fákafeni. Við fengum Ásdísi til að deila með okkur uppskrift af góðri og hreinsandi súpu sem hún segist aldrei fá nóg af! Og ekki nóg með það - hún segir að við þurfum ekki að forðast salt í hreinsun,  bara gæta að magninu. "Himalaya og sjávarsalt er í góðu lagi. Við þurfum smá salt á hverjum degi fyrir almenna líkamsstarfssemi þ.á.m. nýrnahettur," segir Ásdís en hún er lumar á mörgum góðum ráðum fyrir þá sem vilja sinna líkama og sál betur. Á heimasíðu Ásdísar er að finna meðal annars góðan pistil um hreinsun og um bólgueyðandi mat. Vissu þið að eftirfarandi góðmeti vinnur gegn myndun bólgu í líkamanum?

grænmeti, ávextir

Ásdís grasalæknir

fræ og hnetur,

feitur fiskur eins og lax og þorskur,

gróft kornmeti (glúteinlaust í sumum tilfellum).

ananas, dökk ber, kirsuber (ef þvagsýrugigt)

sellerí, grænt salat eins og grænkál, hvítkál

allir laukar

engifer, grænt te

turmerik

kókósolía, hörfræolía, fiskiolía, hampolía og ólífuolía

Uppskriftin

Hreinsandi græn súpa

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Hitið olíu í potti á lágum/miðlungshita og léttsteikið lauk og engifer í 3 mín.
  2. Bætið þar næst grænum baunum og nægu vatni til að hylja baunirnar, látið malla saman í 10 mín á miðlungshita.
  3. Látið súpuna aðeins kólna, skellið súpunni í blandara ásamt myntu, sjávarsalti og pipar.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.