Engifer smákökur

Fara í uppskrift
Engifer smákökur

Þessi uppskrift er dásamleg að öllu leyti fyrir upptekna foreldra. Uppskriftin er einföld og ríkuleg svo nóg verður til af smákökum fyrir börnin og vini þeirra. Bragðgóðar eru þær að sjálfsögðu og lyktin sem fyllir húsið er ómótstæðileg!

engifersmákökur

500 gr hveiti

500 gr púðursykur

250 gr smjör/eða smjörlíki (við stofuhita)

2 egg

6 tsk lyftiduft

1 tsk matarsódi

2 tsk engifer krydd

1 tsk kanill

1/2 tsk negull

klípa malaður pipar

Allt sett í skál og hnoðað saman.

Rúllið svo deiginu í pylsu, skerið í sneiðar sem eru um 1/2 sentimetri að þykkt og setjið á smjörpappír.

Bakið við 175 gráður í um 8-10 mínútur eða þar til þær eru fallega gylltar. Auðveldara verður það varla!

Uppskriftin

engifersmákökur

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Allt sett í skál og hnoðað saman.
  2. Rúllið svo deiginu í pylsu, skerið í sneiðar sem eru um 1/2 sentimetri að þykkt og setjið á smjörpappír.
  3. Bakið við 175 gráður í um 8-10 mínútur eða þar til þær eru fallega gylltar. Auðveldara verður það varla!

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Jón Bran

Bakaði þessar kökur og þær voru óætar og deigið lélegt. Greinileg villa í uppskriftinni 6tsk lyftiduft, en á líklega að vera 1tsk

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.