Brauð og bragðmikið álegg



Þessa baunaídýfu hef ég of gert fyrir matarboð en hana mætti án efa einnig nota í vefjur með salati. Það tekur engan tíma að útbúa hana en hún er skemmtileg tilbreyting frá hummus.
Uppskriftin
Dásamleg hvítbaunaídýfa
Brjálæðislega einföld, bragðgóð og ljúffeng ídýfa fyrir matarboðið, í nesti eða saumaklúbbinn.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Setjið í matvinnsluvél baunir, steinselju, sítrónusafa, hvítlauk, salt, pipar og blandið vel saman.
- Hellið 1/3 bolla af ólífuolíu rólega saman við eða þar til blandan er orðin kremkennd.
- Kryddið aðeins meira með salti og pipar eða eftir smekk.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/02/fljotlegt-braud-og-bragdmikid-alegg/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Þessa dagana er ég vitlaus í pestó, sem ég leyfi mér að deila. Pestó. 1 krukka sólþurkaðir tómatar í olíu 4 döðlur 4 hvítlauksrif 1 dós svartar ólívur 1 pk. furuhnetur 1/2 krukka fetaostur Döðlur settar í skál og tómötunum með olíunni sturtað yfir og döðlurnar látnar mýkjast í ca. 2 tíma. Hvítlaukurinn samanvið og allt maukað vel. Furuhneturnar þurristaðar. Ólívurnar saxaðar gróft og öllu blandað saman. Þar sem ég er með mjólkuróþol, þá nota ég fetaost frá Örnu vinkonu minni í Bolungarvík.
Æði! Mun prufa þessa takk!
Spennandi þetta mun ég prufa!!!!
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.