Heimagert súkkulaði

[caption id="attachment_1309" align="aligncenter" width="640"]

Mynd: Íris Ann[/caption]
Þessir molar eru mjög fljótlegir og koma skemmtilega á óvart. Þeir eru ekki dísætir eins og venjulegt konfekt en duga vel ef þig langar í eitthvað sætt með kaffinu. Mér finnst ósköp gott að fylla þá líka með hnetusmjöri sem dæmi eða setja nokkra piparmintudropa í súkkulaðiblönduna.
Uppskriftin
Sykurlaust súkkulaði
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Kakó-, hnetu- og kókossmjörið er brætt í vatnsbaði. Ef þú finnur ekki kókossmjör er lítið mál að búa það til. Það er gert með því að setja ristaðar kókosflögur í matvinnsluvél ásamt 1 msk. af kókosolíu. Vélin er látin ganga þar til flögurnar verða að smjöri. Einnig má nota meira af kakósmjöri í staðinn en kókóssmjör er einstaklega kremað og ljúft á bragðið.
- Þegar smjörið er bráðnað er því hellt í skál ásamt hinum innihaldsefnunum og hrært í nokkrar mínútur með gaffli þar til silkimjúkt og kekkjalaust. Gott er að hræra með gafflinum í 3–4 mínútur svo súkkulaðið verði mjúkt og fái fallega áferð.
- Smakkaðu þig endilega áfram með stevíuna og saltið. Þegar bragðið er orðið ómótstæðilegt er blandan sett í mót með skeið. T.d. sílíkonmót eða örsmá möffinsform. Séu hin síðarnefndu notuð má skreyta molana t.d. með goji-berjum, kókosflögum eða pekanhnetum.
- Því næst fara mótin inn í frysti í 30 mínútur. Passaðu að mótin séu bein á meðan molarnir stífna. Best er að geyma molana í lokuðu íláti í frysti.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/01/heimagert-sukkuladi/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.