Hin eina sanna salsasósa

Ég elska mexíkóskan mat og er eiginlega á því að allt með salsasósu sé gott. Þessi uppskrift er frá Lucas Keller en þessa sósu geri ég reglulega og á oftast inni í ísskáp. Dásamlegt með kjúklingasalati, eggjaköku, taco eða quesadillas, nú eða sem sósa á pizzur sem ég geri mjög oft en þá nota ég tortillakökur sem botn.
Hin eina sanna salsasósa
4 stórir tómatar
1 hvítlauksgeiri
1/2 rauðlaukur
1 ferskt rautt (fræhreinsað chili aldin)
1/2 ferskt jalapeno - ef þú vilt hafa sósuna sterka (eða 4 sneiðar úr krukku)
safi úr 1 límónu
25 gr kóríander (ein lúka)
salt og pipar
Skerið allt hráefnið í bita og fjarlægið fræ, skelina af laukunum og stilka.
Setjið hráefnið í matvinnsluvél og saxið eftir smekk.
Saltið og piprið eftir smekk.
Salsasósa er algjörlega fitusnauð og inniheldur mjög fáar hitaeiningar.
[caption id="attachment_870" align="aligncenter" width="1890"]

Mynd: Íris Ann[/caption]
Uppskriftin
Hin eina sanna salsasósa
- Undirbúningur
- 10
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Skerið allt hráefnið í bita og fjarlægið fræ, skelina af laukunum og stilka.
- Setjið hráefnið í matvinnsluvél og saxið eftir smekk.
- Saltið og piprið eftir smekk.
EatRVK · https://eatrvk.is/2015/11/hin-eina-sanna-salsasosa/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.