Hjónabandssæla í sveitinni

Þessi uppskrift kemur frá ömmu minni og í hvert sinn sem ég geri hana koma dásamlegar minningar upp í hugann. Þetta er súper einföld og góð hjónabandssæla en með smá leyndarmáli sem setur punktinn yfir i-ið. Þessi fer oftast með okkur í ferðalög þar sem hún geymist vel, öllum finnst hún góð og svo passar uppskriftin akkúrat í skúffukökuálform sem auðvelt er að taka með í ferðalagið. Sultuna sem ég nota má finna hér á síðunni.
Uppskriftin
Hjónabandssæla í sveitinni
Ekta hjónabandssæla sem gerir alla sæla.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Öllu blandað saman í skál með sleif.
- Smyrjið formið og takið helminginn af deiginu og þjappið í botninn á forminu.
- Setjið sultu á botninn svo hún þekji vel.
- Takið restina af deiginu og myljið yfir sultuna.
- Bakið í ofni við 180 gráður í 25-30 mínútur.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/07/hjonabandssaela-i-sveitinni/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Notarðu bollamál eða kaffibolla? Því mamma bakaði allar uppskriftir með kaffibollum og þeir eru oft aðeins minni en málin svo ég hef brennt mig á því nokkrum sinnum (í þau fáu skipti sem ég baka) :)
Sæl Harpa Ég nota alltaf bollamál í mínar uppskriftir, enda elska ég að nota þau, svo einfallt og þægilegt;) Kv. Linda og EATRVK
Hversu stórt form notar þú ? Ferhyrnt eða kringlótt ?
Dásamlega góð hjónabandssæla. Ætla að varðveita þessa uppskrift. Takk fyrir. 🌺
Þessi virkar sérlega góð, ætla prufa hana. En vildi gjarna vita nákvæmlega hver stærðin á forminu er, því ég þarf líklega að kaupa mér form. Sé þú segir skúffuköku álform, það hljómar eins og það sé minna en ofnskúffur sem koma með ofnum.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.