Humarpizza með grænkáli og eplum

Fara í uppskrift
Humarpizza með grænkáli og eplum

Ég elska humarpizzu en finnst oft vanta smá kikk í þær sem fást á veitingarhúsum. Um tíma bauð 101 Hótel upp á skemmtilega útgáfu af humarpizzu með ísbúa og grænum eplum. Síðan ég smakkaði hana hefur mér fundist humarpizzur hálf "boring" ef það eru ekki nokkrar sneiðar af brakandi fersku grænu epli með. Sódavatn með sítrónu, kampavín eða ávaxtaríkt hvítvín er svo toppurinn með.

pizza
20151227_184219-01 (2)

Uppskriftin

Humarpizza með grænkáli, eplum og parmesan

Ef ég hef ekki tíma í að útbúa deigið kaupi ég tilbúið heilhveitideig í Nettó. Það er meira að segja búið að fletja það út á bökunarpappír!

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Pizza

Hvítlauksolía

Aðferð

  1. Fletjið deigið út á bökunarpappír og dreifið sósunni yfir.
  2. Skerið tómatana í tvennt og fjarlægið innihaldið. Annars verður pizzan of blaut. Skerið tómatana í litla báta og dreifið yfir botninn.
  3. Rífið ostinn niður og dreifið yfir botninn. Ég notaði 17% Sveitabita og ferskan mosarella.
  4. Humarinn er hreinsaður og þurrkaður.
  5. 3 msk af smjöri eru bræddar á pönnu ásamt tveimur smátt söxuðum rifjum af hvítlauk. Látið krauma í 2 mínútur og því næst fer humarinn út í.
  6. Humarinn er létt steiktur í um 2 mínútur og létt saltaður með parmesansaltinu dásamlega.
  7. Humrinum er hellt í sigti og en vökvinn settur í sér skál. Grænkálið er saxað og það hrært vel saman við vökvann og loks er restinni af vökvanum hellt af. Grænkálið verður meira djúsí ef það fær smá olíu eða smjör fyrir bakstur.
  8. Bakið botninn í 12 mínútur á 200 gráðu hita með aðeins sósunni, tómötunum og ostinum.
  9. Eftir 12 mínútur er graskersfræjunum, grænkálinu og humrinum bætt á og bakað á grilli í aðrar 2-3 mínútur uns pizzan fer að gyllast.
  10. Pizzan er nú tekin út og ferskum eplaskífum ásamt ferskum parmesan bætt við. Saltið og piprið og toppið með ferskum basil. Hellið að lokum örlítilli olíu yfir.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.