Hvítsúkkulaði­sósa með kókos

Fara í uppskrift
Hvítsúkkulaði­sósa með kókos

Þar sem ég hef ekki alltaf eins mikinn tíma í eldhúsinu og ég myndi vilja þá finnst mér geggjað að hafa nokkrar uppskriftir sem taka lítinn tíma en allir elska. Þessa sósu geri ég oft fyrir matarboð og kaupi þau ber sem eru á góðu verði og helli sósunni yfir þau. Einnig er hægt að nota þessa sósu á amerískar pönnukökur og sérstaklega er hún góð á kókospönnukökurnar sem eru hér á síðunni en einnig er dásamlegt að hella henni yfir ís. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að gera þessa og alltaf er hún fullkomin.

_dsc4273
_dsc4280

Uppskriftin

Hvítsúkkulaðisósa með kókos

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Setjið kókosmjólk og hvítt súkkulaði í pott og bræðið við vægan hita þar til súkkulaðið er bráðnað.
  2. Takið pottinn af hellunni og bætið einum dl af kókos út í sósuna og hrærið.
  3. Hellið yfir það sem þið viljið.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.