Jarðarberjafylltar múffur

Það er alltaf gaman að baka nýjar og öðruvísi múffur. Ég mæli með að prufa sig áfram með sultur í þessari uppskrift. Mér finnst berjasultur bestar og í þetta sinn notaði ég jarðarberja- og rabarbarasultu sem ég gerði um daginn.
Jarðarberjafylltar múffur

Deigið dugir í 12 múffur
150 g sykur
200 g hveiti
1 tsk lyftiduft
150 ml grísk jógúrt eða AB mjólk
2 stór egg eða 3 venjuleg
1 tsk vanilla extract
150 g smjör
12 tsk sulta
3 msk flórsykur til að dusta yfir
Blandið saman öllum þurrefnum í skál.
Bræðið smjörið og setjið til hliðar.
Setjið jógúrt, egg og vanillu í aðra skál og blandið vel saman með pískara.
Blandið blautefnunum saman við þurrefnin, bætið því næst smjörinu við og blandið vel saman.
Penslið múffuformin og setjið eina kúfaða matskeið í hvert form.
Setjið eina tsk af sultu ofan á og svo restina af deginu yfir hverja múffu.
Bakið í 180 gráðu heitum ofni í um 20 mínútur.
Látnar kólna og sigtið flórsykri yfir.
Uppskriftin
Jarðarberjafylltar múffur
Deigið dugir í 12 múffur
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Blandið saman öllum þurrefnum í skál.
- Bræðið smjörið og setjið til hliðar.
- Setjið jógúrt, egg og vanillu í aðra skál og blandið vel saman með pískara.
- Blandið blautefnunum saman við þurrefnin, bætið því næst smjörinu við og blandið vel saman.
- Penslið múffuformin og setjið eina kúfaða matskeið í hvert form.
- Setjið eina tsk af sultu ofan á og svo restina af deginu yfir hverja múffu.
- Bakið í 180 gráðu heitum ofni í um 20 mínútur.
- Látnar kólna og sigtið flórsykri yfir.
EatRVK · https://eatrvk.is/2015/10/jardaberjafylltar-muffur/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.