Jólakokteill með piparkökusýrópi

Fara í uppskrift
Jólakokteill með piparkökusýrópi

Það er alltaf gaman að bjóða uppá nýjan kokteil og hér er jólakokteill sem er svo sannarlega góður, en það besta við hann er sýrópið sem sett er útí freyðivínið!!!!  Það er hægt að nota sýrópið á margt, það er gleðigjafi á pönnukökur, ís, jógúrt, grjónagraut, hafragraut, sódavatn, freyðivín, prosecco og mojito. Það verður allt svo hátíðlegt með þessu sýrópi og það klárast alltaf fljótt. 

[caption id="attachment_973" align="aligncenter" width="2048"]

12422038_10153835610374252_1578259413_o

Mynd: Íris Ann[/caption]

Piparkökusýróp og jólakokteillinn


Fullkomið í jólakokteil eða út á pönnukökur

200 ml vatn

300 gr hrásykur

1 msk engiferduft

1 kanilstöng

Allt sett í pott og suðan látin koma upp. Lækkið þá undir og látið malla í 5 mínútur við lægri hita. Leyfið sýrópinu að kólna og hellið svo í flösku sem hægt er að loka vel. Fullkomin glaðningur.

Ef þú vilt bjóða upp á jólalegan fordrykk er mjög gott aðsetja 2 tsk í glas og fylla upp með góðu freyðivíni eða cava. Skál!

Uppskriftin

Piparkökusýróp og jólakokteillinn

Fullkomið í jólakokteil eða út á pönnukökur

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Allt sett í pott og suðan látin koma upp. Lækkið þá undir og látið malla í 5 mínútur við lægri hita. Leyfið sýrópinu að kólna og hellið svo í flösku sem hægt er að loka vel. Fullkomin glaðningur.
  2. Ef þú vilt bjóða upp á jólalegan fordrykk er mjög gott aðsetja 2 tsk í glas og fylla upp með góðu freyðivíni eða cava. Skál!

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.