Kryddbrauð sem aldrei klikkar

Þetta brauð er snilld að gera, það þarf aðeins að henda hráefnum í skál, hræra með sleif í blöndunni og þá er deigið tilbúið. Ég fæ tvö brauð úr einni uppskrift með því að nota minni brauðform. Þetta er mjög bragðgott og einfallt kryddbrauð sem fullorðnir og börnin elska að borða og baka. Það spillir ekki fyrir hve góð lykt kemur um alla íbúð þegar það er bakað. Gott er að borða það með smjöri og ef einhver afgangur er eftir má geyma það í 3-4 daga í poka eða skera í sneiðar og frysta.

Uppskriftin
Kryddbrauð sem aldrei klikkar
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Hitið ofninn á 180 gráður
- Öll hráefni blandað vel saman í skál
- Penslið tvö form og hellið haframjöli og veltið, hellið blöndunni í formin
- Bakið í 35 - 40 mínútur eða þar til brauðin eru tilbúin
EatRVK · https://eatrvk.is/2018/09/kryddbraud-sem-aldrei-klikkar/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.