Límonaði í sumarskapi - fyrir börnin eða fullorðna

Þetta einfalda límonaði er dásamlega bragðgott. Það er sniðugt í barnaafmælið, fyrir fullorðna sem sumarkokteill eða bara til að dekra við bragðlaukana.

Uppskriftin
Límonaði í sumarskapi
Dásamlega sumarlegt límonaði sem er gott fyrir börnin en einnig er hægt að gera fullorðins útgáfu fyrir sumarpartýið.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Sýróp
Límonaði
Aðferð
Sýróp
- Setjið vatn og sykur saman í pott, hitið saman þar til sykurinn er bráðnaður og kælið.
- Safinn úr sítrónum er settur saman við sýrópið.
Límonaði
- Setjið 6-7 bolla af köldu vatni saman við sýrópið. Gott er að setja klaka saman við.
Kokteill
- 1 skot af sýrópi
- 1 skot af vodka
- Gott að setja 1-2 blöð af basil með fyrir basilunnendur
- Klaki og hrist vel saman
- Sódavatn eftir smekk
- Skreytt með smá sítrónuberki
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/04/limonadi-i-sumarskapi-fyrir-bornin-eda-fullordna/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.