Klikkuð kókosmjólk

Þessi mjólk er í miklu uppáhaldi. Ég bý hana gjarnan til handa dóttur minni eða þegar ég er í hreinsun/detoxi. Góða kókosmjólk til drykkjar má vissulega kaupa í fernum en með þessa elsku, þá veit ég nákvæmlega hvað er í henni og það tekur stutta stund að útbúa hana. Mjólkin er góð í ýmsa rétti, grauta eða bara til að drekka volga. Kókosunnendur verða ekki sviknir.
Uppskriftin
Heimagerð kókosmjólk
Heilnæm og án allra aukaefna!
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Setjið allt saman í blender (ef hann þolir hita) annars í skál og látið standa í 5-10 mínútur.
- Þegar vatnið hefur kólnað og er aðeins ylvolgt er blandarinn settur af stað og látinn ganga duglega eða þar til vökvinn verður hvítur.
- Því næst er blöndunni helt í gegnum spírupoka eða þunnt viskustykki og hratið tekið frá. Mjólkin á nú að vera hvít og tær.
- Hratið má nýta til að þykkja kássur, grauta, drykki eða ef það er þurrkað er það orðið að kókoshveiti.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/01/mongud-kokosmjolk/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.