Pönnukökur heilsuhjúkkunnar

[caption id="attachment_1069" align="alignright" width="200"]

Ásthildur Björnsdóttir[/caption]
Ásthildur Björnsdóttir einkaþjálfari, hjúkrunarkona og matgæðingur er í miklu uppáhaldi hjá mér en hún heldur úti síðunni Matur milli mála. Hún mun deila með okkur góðum uppskriftum næstu vikuna en janúar verður sannkölluð heilsuveisla hér á EatRVK. Ásthildur er einstkalega góð í að sameina ástríður sínar; heilsu, mat og fjölskylduna en í eldhúsi sínu í Hollandi gerast ævintýri oft á dag!
"Stundum eru dagarnir bara þannig að yfir mann kemur pönnukökuandinn. Það hefur einmitt verið að gerast á mínu heimili undanfarið og hafa þá þessar verið gerðar þar sem þær eru svo fljótlegar, einfaldar og vegna þess hversu fá innihaldsefni þær innihalda."

Uppskriftin
Hollari pönnukökur
Plantain bananar eru yfirleitt kallaðir bökunarbananar á íslensku (líta út eins og risavaxinn banani nema að hýðið er ennþá þykkra heldur en á venjulegum banana). Ef þú finnur ekki plantain þá er hægt að redda sér með venjulegum banönum og þá er gott að hafa þá 2 meðalstóra eða 3 litla.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Allt sett í blender og blandað vel saman.
- Smávegis af kókosolíu hituð á pönnu rétt undir meðalhita.
- Hér er gott að nota t.d. stóra skeið, litla ausu til að skammta deigið á heita pönnuna þannig að pönnukökurnar séu allar af svipaðri stærð.
- Settu frekar færri pönnsur á pönnuna heldur en of margar svo að þær klessist síður.
- Þegar það byrja að koma smá “búbblur” (loftbólur) í deigið að þá er tími til að snúa pönnsunum við. Ýttu þá einnig varlega niður á pönnsuna með spaða til að þær fletijist aðeins meir út.
- Ágæt að kíkja annað slagið undir pönnsuna og þegar hún hefur náð gullna litnum þá er hún tilbúin.
- Gerðu alveg ráð fyrir að fyrstu pönnsurnar séu tilraunapönnsur á meðan þú finnur rétta hitastigið – fyrst þegar ég gerði þær voru þær frekar í dekkri kantinum þar sem ég hafði hitann of háan (var með á 7 af 10) en ég næ þeim fínum þegar ég stilli á rétt undir meðalhita (koma vel út á hitanum 4 af 10).
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/01/ponnukokur-heilsuhjukkunnar/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.