Pönnukökur með ristuðu kókos

Um daginn var ég að skoða uppskriftir og sá þá kókosuppskrift sem minnti mig á þessar dásamlegu pönnukökur sem ég gerði fyrir nokkrum árum og hafði hreinlega gleymt. Það er alltaf gaman að grafa upp gamlar gersemar og því skellti ég í þessa klassík handa drengjunum mínum sem voru allir sammála um að þetta væru bestu pönnukökurnar. Þessum mun ég ekki gleyma aftur.

Uppskriftin
Pönnukökur með ristuðum kókos
Dásamlegar pönnukökur með ristuðum kókos sem gefur sérstaklega skemmtilegt bragð. Bragðlaukarnir skoppa af gleði.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Ristið kókos á pönnu þar til gyllt, setjið til hliðar.
- Blandið saman í stóra skál hveiti, sykri, salti, bolla af kókos, matarsóda, lyftidufti og blandið vel með gaffli.
- Blandið saman í aðra skál eggjum, mjólkinni, ab-mjólkinni, kókosolíu og vanillu essens og hrærið vel saman með písk.
- Blandið blautefnum saman við þurrefnin, ef deigið er of þykkt þynnið með kókosmjólk. Deigið á að vera eins og hafragrautur. Passið að hræra ekki of mikið, þá fer loftið úr deiginu.
- Hitið pönnu og bakið pönnukökurnar við vægan hita, það sést á deiginu hvenær best er að snúa, þá myndast litlar loftbólur, tekur um 2 mínútur á hvorri hlið.
- Berið fram með ristuðum kókos, gott er að smyrja þær með smjöri og hafa sýróp til hliðar. Þessar eru geggjaðar með ferskum jarðaberjum því það gerist eitthvað kraftaverk þegar kókos og jarðaber hittast.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/03/ponnukokur-med-ristudu-kokos/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.