Rabarbara-, jarðaberja- og basilsíróp

Ég var svo heppin að fá gefins tvo fulla poka af rabarbara og strax langaði mig að gera síróp. Það er svo skemmtilegt og einfalt að gera síróp, hægt er að leika sér með hráefnin og svo er hægt að njóta þess á svo marga vegu. Að þessu sinni notaði ég það sem ég átti í ísskápnum, fallega rabarbarann, jarðber og basil. Þetta síróp er einstaklega gott á pönnukökur, skyr og á hafragrautinn en best finnst okkur fjölskyldunni að setja það í sódavatn eða kokteila fyrir fullorðna fólkið. :)
Uppskriftin
Rabarbara-, jarðaberja- og basilsíróp
Einfalt og bragðgott síróp sem hægt er að nota á marga vegu.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Smátt skorinn rabarbari, jarðaber, sykur og vatn sett í pott og suðan látin koma upp. Lækkið svo undir og látið malla í um 10 mínútur.
- Setjið basil laufin í sírópið og látið blandast vel saman í pottinum í um 5-10 mínútur, því lengur því meira bragð. Ég nota um 10 stór lauf af basil í mitt síróp.
- Setjið stórt sigti yfir skál, setjið grisju í sigtið og setjið blönduna úr pottinum í sigtið. Látið vökvann síga í skálina í nokkra stund, kreistið eins mikinn vökva úr grisjunni og þið getið.
- Setjið sírópið í sótthreinsaðar flöskur og geymið í kæli.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/06/rabarbara-jardaberja-og-basilsirop/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.