Reffilegt rabarbara- og jarðaberjasíróp

Fara í uppskrift
Reffilegt rabarbara- og jarðaberjasíróp

Þetta síróp er dásamlega einfalt og er gott yfir jógúrt, ísinn, í sódavatn eða í mojito. Hægt er að leika sér með hlutföll og gerð ávexta. Ég hef til dæmis gert þetta með jarðarberjum, basil og límónusafa sem kom mjög vel út.

Rabarbara- og jarðarberjasíróp

1 bolli vatn

1 bolli sykur

1 bolli rabarbari (skorin í bita)

1 bolli jarðaber (skorið í bita)

Sykur og vatn sett í pott og látið sjóða, lækkað undir og bætið rabarbara og jarðarberjum saman við.

Látið malla í 10-15 mín og hrært reglulega í.

Takið af hellunni og látið kólna. Setjið grisju í sigti yfir skál og hellið fallega rauðu sírópinu í gegn. Fjarlægið hratið og hellið yfir á fallegar flöskur og geymið í ísskáp.

Ef rabarbari er ekki til er hægt að setja aðra ávexti í staðinn, t.d. hindber.

Uppskriftin

Rabarbara- og jarðarberjasíróp

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Sykur og vatn sett í pott og látið sjóða, lækkað undir og bætið rabarbara og jarðarberjum saman við.
  2. Látið malla í 10-15 mín og hrært reglulega í.
  3. Takið af hellunni og látið kólna. Setjið grisju í sigti yfir skál og hellið fallega rauðu sírópinu í gegn. Fjarlægið hratið og hellið yfir á fallegar flöskur og geymið í ísskáp.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Egill Þór Hallgrímsson

Rosalega Flott allt saman og get ekki beðið að prófa! ((:>

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.