Sæt möndlumjólk

Þessi mjólk er fljótleg og mjög bragðgóð. Ekki skemmir fyrir að í hana þarftu aðeins tvö innihaldsefni auk vatns. Ef þú átt aðrar hnetur svo sem hesilhnetur er tilvalið að nota þær eða jafnvel bæði möndlur og hesilhnetur. Þeir sem elska stevíu geta sett 3 dropa af henni í staðinn fyrir döðlur. Stundum set ég líka ferska vanilu ef vel liggur á mér!
Uppskriftin
Sæt möndlumjólk
Tilvalin út í grauta og drykki ! Ég tvöfalda yfirleitt uppskriftina en hún geymst í um 3 daga í lokaðri krukku í kæli. Hana má einnig frysta í klakaboxi.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Setjið möndlurnar og vatnið í blandara og maukið vel. Í venjulegum blandara getur þetta tekið 2-3 mínútur.
- Bætið því næst döðlunum út í og maukið aftur í um 2 mínútur.
- Sigtið hratið frá í gegnum nælonsokk, spírupoka eða viskustykki. Þeas ef þú vilt alveg tæra mjólk.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/01/saet-mondlumjolk/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.