Stevíustubbar

Fara í uppskrift
Stevíustubbar

Þessar smákökur eru í hollari kantinum en svíkja engan. Eintóm hamingja og ekkert samviskubit, það er að segja ef þú getur takmarkað neysluna við tvö stykki á dag. Gangi þér vel með það.

Stevíustubbar


Þú ræður hvort þú notar strásætu t.d. frá Via Health og sykurlaust súkkulaði eða hrásykur, hunang og 70% súkkulaði.

1 stórt egg

120 g fínmalað spelt

1/2 tsk lyftiduft

1 tsk vanilla/vanilludropar

100 g kókosolía (brædd)

70 g stevíu-strásæta frá Via Health eða hrásykur (eða hunang (eða döðlumauk - á eftir að prufa það))

30 dropar karamellu-stevía frá Via Health

100 g haframjöl

50 g kókosmjöl

50 g saxaðar salthnetur

100 g saxað súkkulaði (sykurlaust eða 70%)

70 % Meira súkkulaði til að hjúpa – dökkt mintusúkkulaði frá Green & Black‘s er æði

Öllu er hrært vel saman með sleif og kúlur mótaðar. Deigið á það til að loða illa saman en þá er bara að hnoða það aðeins í höndunum.

Kúlurnar eru settar á plötu og þrýst ofan á þær með spaða.

Bakað við 180 gráður í 10-12 mínútur.

Kælið.

Bræðið auka súkkulaði og stingið annarri hliðinni á kökunum ofan í og látið storkna á bökunarpappír.

Geymist í kæli.

Þessar kökur eru bestar eftir sólahring í kæli og geymast vel í kæli eða frysti.

[caption id="attachment_587" align="alignnone" width="3504"]

IMG_1878

Mynd: Tobba Marinós[/caption]

Uppskriftin

Stevíustubbar

Þú ræður hvort þú notar strásætu t.d. frá Via Health og sykurlaust súkkulaði eða hrásykur, hunang og 70% súkkulaði.

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Öllu er hrært vel saman með sleif og kúlur mótaðar. Deigið á það til að loða illa saman en þá er bara að hnoða það aðeins í höndunum.
  2. Kúlurnar eru settar á plötu og þrýst ofan á þær með spaða.
  3. Bakað við 180 gráður í 10-12 mínútur.
  4. Kælið.
  5. Bræðið auka súkkulaði og stingið annarri hliðinni á kökunum ofan í og látið storkna á bökunarpappír.
  6. Geymist í kæli.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.