Sturlað súkkulaði salami

Þetta gúmmelaði er upphaflega frá Ítalíu og Portúgal. Það er til í mörgum útgáfum og auðvelt er að leika sér með hráefnin. Það sem er frábært við þennan súkkulaðirétt er hve einfaldur hann er og bragðgóður. Þetta getur hreinlega ekki klikkað, ég meina hver elskar ekki súkkulaði? Og svo geymist hann vel svo hægt er að gera hann 1-2 dögum áður en borða á þessa dásemd. Það er mjög gaman að gera minni útgáfu og koma með í matarboð, svo er þessi dásamlega súkkulaði „pulsa“ svo falleg þegar hún er skorin – svolítið eins og að opna fallega innpakkaða gjöf ;)

Mynd Íris Ann Sigurðardóttir/mbl.is
Uppskriftin
Sturlað súkkulaði salami
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Bræðið súkkulaðið og smjör í skál yfir vatnsbaði og setjið svo til hliðar.
- Blandið saman með handþeytara vanilludropum, sykri og eggi þar til blandan er fallega ljósgul.
- Brjótið kexið og bætið saman við eggið, hellið svo hnetum og þurrkuðum ávöxtum saman við.
- Blandið súkkulaðinu saman við varlega með sleif. Setjið blönduna á plastfilmu og rúllið upp í pulsu með því að snúa vel upp á endana. Setjið í kæli þar til gleðin hefur harðnað.
- Stráið flórsykri yfir og nuddið vel á sívalninginn og skerið í sneiðar og njótið með góðu rauðvínsglasi eða kaffibolla.
EatRVK · https://eatrvk.is/2017/03/sturlad-sukkuladi-salami/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.