Súkkulaði kínóakúlur

Fara í uppskrift
Súkkulaði kínóakúlur
IMG_20160130_125620

Þessar kúlur eru svo góðar að ég verð hálffúl ef einhver kemur í kaffi og ég þarf að deila þessum elskum. Þær eru mjög bragðmiklar og kínóapuffsið getur þeim skemmtilega áferð. Þeir sem elska "kökudeigs" sælgæti og ís munu tryllast yfir þessum gleðisprengjum. Mér finnst best að gera þær litlar svo þær séu bara einn lekker munnbiti og þær eru bestar eftir hálftíma í frystir.

Kínóapuffsið fann ég í Nettó en það lítur svona út og má einnig nota sem morgunkorn eða út á grauta, jógúrt eða "nicecream." Þetta undrastöff er sykur og glútenlaust. 

NatureCrops_Quinoa

Uppskriftin

Sykurlausir súkkulaðiboltar

Hrikalega gott. Sko hrikalega og án viðbætts sykurs. Nammi namm!

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Látið döðlurnar liggja í heitu vatni í korter.
  2. Hellið vatninu af og látið döðlurnar í matvinnsluvél eða öflugan blandara ásamt 1 dl af kókosolíu. Blandið saman uns verður að kekkjalausu deigi.
  3. Setjið restina af innihaldsefnunum, allt nema kínóapuffsið út í blönduna.
  4. Kveikið aftur á vélinni og vinnið hráefnin vel saman.
  5. Hellið blöndunni í skál og hrærið kínóanu varlega saman við með skeið.
  6. Kælið blönduna svo hún sé meðfærilegri áður en mótaðar eru litlar kúlur.
  7. Geymið hamingjuna í frysti og borðið þegar ykkur vantar orku og hamingjuskot! Eða þegar tengdó er með dólg. Þá má fá sér rauðvín með.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.