Smjörkaramellu-, lakkrís- og döðlubitar!

Þessir bitar eru stökkir, dísætir og fljótlegir í gerð. En athugið þetta gotterí er mjög sætt. Maðurinn minn elskar þá sem fær mig til að efast um að hann sé í raun 42 ára! Í bitana nota ég lífrænt súkkulaði frá Green and Black's sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Ljósbláa pakkningin, þ.e.a.s. súkkulaði með sjávarsalti er algjörlega tryllt! En jæja, það er önnur kolvetnisþoka... Vindum okkur í ólifnaðinn!
Súkkulaði-, smjörkaramellu-, lakkrís- og döðlubitar!

200 gr dökkt súkkulaði
200 gr Butterscotch súkkulaði frá Green and Black's
120 gr smjör
100 gr lakkrískurl
50 gr smátt saxaðar döðlur
50 gr Rice Krispies
50 gr hvítt súkkulaði til skreytingar
Bræðið saman smjör, butterscotch súkkulaðinu og döðlur. Látið malla þar til döðlurnar eru orðnar mjúkar og allt blandast vel saman. Blandið Rice Krispies og lakkrískurlinu saman við og hrærið vel. Setjið bökunnarpappír í kökuform eða eldfast mót og þjappið deiginu ofan í.
Kælið blönduna í forminu á meðan þið bræðið dökka súkkulaðið í vatnsbaði.
Eftir að blandan er tekin að stirðna er dökka súkkulaðinu hellt yfir og kælt aftur.
Í lokin er hvíta súkkulaðið brætt og notað til að skreyta plötuna.
Enn á ný er þetta allt kælt áður en platan er skorin í lekkera bita.
Geymist best í kæli.
[caption id="attachment_739" align="aligncenter" width="640"]

Mynd: TM[/caption]
Uppskriftin
Súkkulaði-, smjörkaramellu-, lakkrís- og döðlubitar!
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Bræðið saman smjör, butterscotch súkkulaðinu og döðlur. Látið malla þar til döðlurnar eru orðnar mjúkar og allt blandast vel saman. Blandið Rice Krispies og lakkrískurlinu saman við og hrærið vel. Setjið bökunnarpappír í kökuform eða eldfast mót og þjappið deiginu ofan í.
- Kælið blönduna í forminu á meðan þið bræðið dökka súkkulaðið í vatnsbaði.
- Eftir að blandan er tekin að stirðna er dökka súkkulaðinu hellt yfir og kælt aftur.
- Í lokin er hvíta súkkulaðið brætt og notað til að skreyta plötuna.
- Enn á ný er þetta allt kælt áður en platan er skorin í lekkera bita.
EatRVK · https://eatrvk.is/2015/12/sukkuladi-smjorkaramellu-lakkris-og-dodlubitar/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.