Sumarleg engifer- og chilisulta

Fara í uppskrift
Sumarleg engifer- og chilisulta

Loksins er komið sumar og þá er ekkert betra en að gera ostabakka með góðum ostum og sultu þegar gestir koma. Þessi sulta er í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni, hún er mikið notuð og á marga vegu. Til dæmis er gott að nota hana í salatdressingu, á fiskinn inn í ofn og sem meðlæti. Úr þessari uppskrift fær maður 6 krukkur svo upplagt er að gefa gestgjöfum þær þegar maður fer í matarboð. Fyrir þá sem eru ekki hrifnir af engifer má alveg sleppa honum, en mér finnst hann dásamlegur í þessari sultu.

Uppskriftin

Sumarleg engifer- og chilisulta

Dásamleg sumarsulta sem er góð með öllu.

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Chili, engifer og papríka sett í matvinnsluvél og maukað saman, þó ekki of lengi.
  2. Maukið sett í pott ásamt sykri og ediki.
  3. Hrærið vel í og látið suðuna koma upp.
  4. Látið malla við lægri hita í um 10-15 mínútur.
  5. Ein teskeið af sultuhleypi sett útí í einu og leyft að sjóða saman í um mínútu þar til næsta teskeið er sett útí. Mér finnst best að sigta sultuhleypinn þegar hann er settur í sultuna.
  6. Gott er að taka appelsínugulu froðuna sem myndast á sultunni af með skeið og henda henni, sultan verður mun betri og fallegri.
  7. Sultunni hellt í heitar krukkur og látið kólna.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Halla

Hvað verður til mikið af sultu úr þessari uppskrift? Er aðferðin eins ef hún er t.d. helminguð?

Linda Björk Ingimarsdóttir

Sæl:) Þú færð um 5-6 sultukrukkur úr uppskriftinni og já það er eins aðferð þegar hún er helminguð.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.