Svart­bauna­borgari með sól­kjarna­majó

Fara í uppskrift
Svart­bauna­borgari með sól­kjarna­majó

Halldór Steinsson er matreiðslumaður á Náttúrulækningastofnuninni í Hveragerði. Maturinn sem borin er þar á borð er sannkallað lostæti sem fer vel í líkama og sál. Ég hef lengi haldið því fram að þarna sé einn besti salatbar landsins og án efa besti morgungrautur heims. Ég hvet þá sem eiga leið um Hveragerði til að koma við og fá sér að borða en matstofan er opin gestum. Hádegismaturinn er stærsta máltíð dagsins og ég get lofað ykkur að það er vel ferðarinnar virði. Hér deilir Halldór með okkur uppskrift af hinum sívinsælu Svartbaunaborgurum staðarins með sólkjarnamajó.

halldór

Halldór er reglulega með matreiðslunámskeið á Heilsustofuninni í Hveragerði. 10. janúar verður boðið upp á vikulangt námskeið sem kennir fólki að elda og borða hollan mat, hreyfa sig, sofa betur og minnka streitu. Á námskeiðinu verður m.a. farið í þrek- og vatnsleikfimi, jóga og göngur, skipulagðar hjólaferðir, ferð í Laugarvatn Fontana, matreiðslunámskeið og markmiðasetningu. Sjá nánar hér.

Uppskriftin

Svartbauna- og kínóaborgarar

6-8 borgarar

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Laukurinn er svitaður á pönnu ásamt selleríinu, tómötunum, hvítlauk og þurrkryddunum.
  2. Því næst er allt sett í skál og hnoðað.
  3. Borgarar mótaðir og lagðir á smurða ofnplötu og eldaðir á 180 gráðum í 25 mín, þá er þeim snúið við og bakaðir áfram í 10 mín.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.