Sykur- og glútenlausir kornfleksbitar

Mig langaði að gera hollari útgáfu af kornflekskökum í konfekt stærð. Þessir molar heppnuðust prýðisvel og hef ég gert þá nokkrum sinnum í desember. Eða þú veist tvisvar. Eða þrisvar. Allavega. Það komu gestir! Sykurfíkilinn systir mín er sólgin í þá sem segir mér að þeir eru ansi góðir þrátt fyrir sykurleysið. Ekki skemmir fyrir hversu fljótlegir þeir eru.
[caption id="attachment_919" align="aligncenter" width="640"]

Mynd: TM[/caption]
Uppskriftin
Sykurlausir kornfleksmolar
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Kakósmjörið er brætt við vægan hita í potti.
- Þegar það er bráðnað fer appelsínusúkkulaðið og hnetusmjörið út í.
- Næst fer kakóið, stevían og saltið út í.
- Ég kæli blönduna svo aðeins þannig að hún fari að þykkna. Þannig hylur súkkulaðið kornfleksið betur.
- Þegar súkkulaði er byrjað að þykkna fara döðlurnar og kornfleksið út í. Hrærið vel og smakkið til með stevíu. Ég mer aðeins kornfleksið svo stærstu flögurnar brotni og blandan fari betur í formi.
- Því næst er blandan sett með skeið í lítil möffinsform í konfektstærð og látið storkna inn í frysti.
EatRVK · https://eatrvk.is/2015/12/sykur-og-glutenlausir-kornfleksbitar/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.