Sykurlausar kókoskúlur

Fara í uppskrift
Sykurlausar kókoskúlur

Þessar elskur eru allt í senn; sætar, áferðargóðar og saltar! Jafnvel matvönd börn og fúlir bankastarfsmenn slafra þessu í sig með bros á vör.

Sykurlausar kókoskúlur

2 dl hreint kakó (ósætt)

2 tsk vanilla eða vanilludropar

2 dl kókosmjöl

1 dl sesammjöl (má sleppa – gerir kúlurnar próteinríkari)

5 dl saxaðar döðlur

2 dl saxaðar hnetur (t.d. möndlur og hesilhnetur)

1,5 dl brædd kókosolía

5 dropar vanilustevía ef vill

sjávarsalt

Öllu hrært vel saman og kúlur mótaðar.

Blandið saman 2 dl af kókosmjöli og hálfri tsk af möluðu sjávarsalti og veltið kúlunum upp úr því.

Geymið kúlurnar í frysti og takið út nokkrum mínútum áður en bera á á borð.

Uppskriftin

Sykurlausar kókoskúlur

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Öllu hrært vel saman og kúlur mótaðar.
  2. Blandið saman 2 dl af kókosmjöli og hálfri tsk af möluðu sjávarsalti og veltið kúlunum upp úr því.
  3. Geymið kúlurnar í frysti og takið út nokkrum mínútum áður en bera á á borð.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Ásbjörg

Hæhæ! Notaru 2 dl af kókosmjöli í "deigið" sjálft og svo 2 dl til viðbótar til að velta úr? Hlakka til að prufa!

Þorbjörg Marinósdóttir

Já. Einmitt :)

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.