Velkomin(n) í 7 daga detox!

Látum kroppinn blómstra! Næstu 7 dagar verða erfiðir en ekki óþolandi. Þú átt aldrei að þurfa upplifa hungur. Við erum að telja innihaldsefni, ekki hitaeiningar. Því minna sem maturinn er „unninn“ (þ.e. eldaður) því betra. Þú sníður því hreinsunina að þínum þörfum og þarft að hafa í huga að það sama hentar ekki öllum. Sumir hafa margoft farið í detox og ákveðið að losa líkamann við hin ýmsu efni svo sem hveiti, sykur, ger, glúten, koffín og fleira. Þeir sem eru vanir slíkum hreinsunum geta tekið skrefið lengra en aðrir verða að fara rólega til að fara ekki fram úr sér og eiga á hættu að gefast upp.

Kostirnir við slíka hreinsun eru margir, svo sem aukin orka, betri svefn, minni bólgur í líkama, margir tala um skarpari hugsun, minni liðverki, minni sykurlöngun og svona mætti lengi telja. En þetta gerist ekki á einum degi. Á meðan líkaminn er að losa sig við ýmis efni gætir þú upplifað fremur óskemmtilega stemmingu en það gengur venjulega yfir á fyrstu þremur dögunum. Ég heyri gjarnan fólk segja að eftir fyrstu vikuna sé komið visst jafnvægi og því kjósa jafnvel einhverjir að halda áfram í nokkra daga eða vikur í viðbót. Aðrir gætu ákveðið að hreinsa alltaf einn dag í viku eða þrjá daga í mánuði. En við skulum byrja á þessari viku.

Þú gætir fundið fyrir tómleikatilfinningu, depurð, höfuðverk, þreytu og fleiri einkennum sem við tökumst oft á við með að dæla í okkur sykri, áfengi, nikótíni eða koffíni. Næstu 7 daga ætlar þú ekki að stytta þér leið með slíkum efnum. Það tekur á en þú ert fullkomlega fær um það. Líkami þinn er magnaður og getur gert svo miklu meira en þig órar fyrir. Treystu honum. Líkaminn mun losa sig við þau efni sem eru honum óæskileg, þú þarft bara að standa með honum. Þú færð daglega pósta með uppskriftum og hvatningu og í lok þessara 7 daga mun ég mæla með að smám saman bæta inn hráefnum til að þú finnir hvað fer vel í þig og hvað ekki.

Jóga, göngur, góðar bækur, sund og líkamsrækt eru góðar leiðir til að takast á við depurð. Eins er gott að svitna vel út t.d. í gufu til að flýta fyrir hreinsuninni. Varastu þó að stunda mjög ákafar æfingar í byrjun hreinsuninnar. Líkaminn á nóg með það sem hann er að ganga í gegnum.
 
Morgunvenjur: Gott er að hefja hvern dag á einum bolla af soðnu vatni með 1 msk af rifnu engiferi og 1 msk af sítrónusafa. Fyrir upptekna fólkið má kaupa sítrónusafa og engiferskot í litlum glerflöskum í Bónus (frá Sollu). Engifer og sítróna er mjög hreinsandi, bólgueyðandi, vatnslosandi og svo mætti lengi telja. Mörgum finnst einnig gott að setja 1 msk af lífrænu eplaediki út í vatnsbrúsa og drekka fyrri part dags. Eplaedikið er vatnslosandi líkt og sítróna og ýtir undir basísk áhrif í kroppnum og ku bæta meltinguna.

Hrósaðu þér um leið og þú leggur út í daginn. Það þarf dugnað og sjálfsaga í að neita sér um morgunkaffið, ristaða brauðið, súkkulaðimolann, gosdrykkina eða hvað það nú er sem þú saknar mest. Þörfin eða hreinlega fíknin sem þú munt upplifa í vissar matvörur eða efni segir ansi mikið til um hversu óhollt viðkomandi efni er í raun.

Sykurlöngun geturðu tæklað á ýmiss konar máta, t.d. með því að dreifa huganum og fara að gera eitthvað sem kallar á óskipta athygli þína eða fá þér bita sem er mjög sætur þó hann innihaldi ekki viðbættan sykur, svo sem döðlur, rúsínur, mangó, bláber eða 1 tsk hnetusmjör á eplaskífu.  Það er einnig mjög gott að eiga girnilegt ávaxtasalat í ísskápnum til að grípa í.

mondlumjolk

Möndlumjólk

Ég mæli með að þú útbúir svolitla möndlumjólk í kvöld en hún er virkilega góð út í chia-graut og ýmsa drykki og hana er auðvelt að gera. Þetta snýst jú um að stíga út fyrir þægindarammann! Ef þú hefur ekki enn skráð þig á póstlistann getur þú gert það hér:

26 Comments on “Velkomin(n) í 7 daga detox!

  1. Halló.

    Ég skráði mig í þessa 7 daga detox en er ekki alveg að skilja hvernig þetta virkar. Verða sendar uppskriftir sem hægt verður að styðjast við eða verða sendir út matseðlar. Hvað eigi að borða í morgunmat, hádegi og kvöld osfrv ?

    Ef það er þannig að allri eru að borða það sama í þessu, þ.e. Í morgunmat fær maður sér… Og í hádeginu fær maður sér…
    Þá finnst mér mjög óþæginlegt og dregur úr mér áhugann að vera með og fara eftir þessu, ef ég þarf að bíða þar til morguninn sem ég byrja til að vita hvað ég eigi að vera með í morgunmat, osfrv.
    Að taka mataræðið í gegn og ætla að halda út eitthvað svona krefst skipulagningar og mér finnst mjög nauðsynlegt að vita hvernig vikan kemur til með að líta út.
    Kannski er þetta allt komið inn einhverstaðar en ég bara svo blind að eg´sé það ekki, það væri nú ekki í fyrsta sinn sem það mundi gerast. Er matseðillinn kominn inn einhverstaðar 🙂 ?
    Takk takk.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *