Heimagert hóstasaft

Ég hef alltaf verið hrifin af öllu sem maður getur gert sjálfur og er án aukaefna. Þetta hóstasaft er einfalt og heiðarlegt. Saftinn slær á hósta og róar háls og er kærkomin vinur í flensufaraldrinum sem nú reikar. Það má jafnvel setja 1 tsk af saftinu út í heitt te og vefja sig svo inn í teppi með góða bók. Ahhhhh…

Heimagert hóstasaft
Bragðgott hóstasaft sem einfalt er að gera, er ódýrt og geymist vel í ísskápnum.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 2 msk gott eplaedik
  2. 2 msk hunang
  3. 2 msk vatn
  4. 1/4 tsk cayenne pipar
  5. 1/4 tsk engifer duft
Leiðbeiningar
  1. Setjið allt innihald í krukku og hristið vel.
Athugasemdir
  1. Geymist við stofuhita í 2-3 daga, mun lengur í kæli. Hristið hóstasaftið alltaf áður en það er notað. Það má drekka það eftir þörfum.
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *