Sykurlaus karamellu-bananafrappó

IMG_20160629_201114Ég elska ískaffi og finnst gaman að prufa nýjar samsetningar eins og banana- eða piparmintufrappó. Uppistaðan er alltaf sú sama, espressó og góð mjólk, t.d. kókosmjólk úr fernu eða hnetumjólk, klakar og svo er um að gera að leika sér við að bragðbæta. Ég nota gjarnan sykurlaust bráðið súkkulaði til að skreyta en þá helli ég því innan í glasið og drykkurinn er það kaldur að súkkulaðið storknar um leið og drykkurinn fer í glasið. Svo kvarnast aðeins úr súkkulaðinu um leið og maður drekkur. Jummí!

20160630_091207

Karamellu-bananafrappó
Ferskur og kraftmikill drykkur. Ef þú vilt nýta hann sem máltíð er tilvalið að setja prótein út í drykkinn.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 1 vel þroskaður (helst frosinn) banani
  2. 200 ml kókosmjólk í fernu eða hnetumjólk
  3. 2 döður
  4. 4 dropar karamellustevía
  5. 2faldur espressó
  6. 6 klakar
Leiðbeiningar
  1. Setjið öll innihaldsefnin í blandara og blandið vel.
EatRVK https://eatrvk.is/

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *