Klassísk kjötsúpa - Minni sóun

Klassísk kjötsúpa er matarmikil og full af grænmeti og kjöti. Súpan þarf ekki að kosta mikið en er alltaf jafn vinsæl hjá öllum aldurshópum. Ég notaði tækifærið í Minni sóun átakinu mínu þegar ég sá lambalærissneiðar á tilboði og skellti í kjötsúpu. Ég kaupi alltaf lambalærissneiðar í stað hefðbundins súpukjöts þar sem mér finnst það oft of feitt. Ég fékk svo bæði rófur og gulrætur á tilboði vegna þess hversu stutt var í fyrningu á þeim svo ég eldaði súpu handa 5 fullorðnum fyrir 2000 krónur! Svo er súpan alltaf bara betri daginn eftir.

Uppskriftin
Klassísk kjötsúpa
- Skammtar
- 4
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Setjið kjötið í pott ásamt köldu vatni.
- Hitið rólega að suðu og fleytið froðu ofan af ef kjötið er feitt.
- Skerið grænmetið í litla bita og bætið út í. Látið malla við miðlungs hita í 20 mínútur.
- Setjið teningana út í ásamt kryddinu, hrísgrjónunum og súpujurtunum.
- Setjið lok á pottinn og látið malla í að minnsta kosti 30 mínútur eða þar til grænmetið er orðið mjúkt og kjötið meyrt.
- Saltið og piprið eftir smekk og stráið ferskri steinseljunni yfir.
- Mér finnst ómissandi að bjóða upp á kalda mjólk og súrdeigsbrauð með.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/04/klassisk-kjotsupa-minni-soun/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.