Lax með hnetukurli og basil

Fylgifiskar eru dásamleg fiskbúð þar sem metnaður og matarást geislar af hverju starfsmanni. Ég elska fisk og elda fisk að lágmarki tvisvar í viku. Einkaþjálfarinn minn fyrrum (hann dó ekki - ég flutti bara og fór í aðra stöð) kallar fisk ofurfæðu og skipaði mér að borða hann 3-4 sinnum í viku sem ég gerði með mikilli gleði. Með stóru salati og steiktu eða grilluðu grænmeti. Dásamlegt! Ekki er verra að henda í mangósalsa með.
Við fengum Guðbjörgu hjá Fylgifiskum til að deila með okkur uppáhalds fiskuppskriftinni sinni.

Uppskriftin
Lax með hnetukurli og basil
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Forhitið ofn í 220°C.
- Saxið fínt eða maukið hnetur og fræ, og setjið saman við olíuna.
- Fínt saxið basil og hvítlauk og bætið út í ásamt 1 matskeið af masala kryddi.
- Rífið eða klippið tvö hæfilega stór bökunarpappírsblöð til þess að setja undir laxastykkin.
- Rúllið upp í létt mót kringum hvorn bita.
- Hellið maukinu jafnt milli bitanna og bakið í ofni í 10-15 mínútur eftir þykktinni á laxastykkjunum. Saltið og piprið eftir smekk.
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/02/lax-med-hnetukurli-og-basil/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.