Nicecream hreinsun!

Fara í uppskrift
Nicecream hreinsun!

Hver elskar ekki Nicecream? Hnausþykkan ís úr frosnum ávöxtum? Ji minn eini, ég gæti borðað þessa dásemd í öll mál! Mér datt í hug að setja saman matseðil fyrir hreinsandi Nicecream dag. Það má vel lengja hreinsunina í þrjá daga ef þú ert í stuði! Mikilvægt er að drekka vel af vatni yfir daginn og forðast allan unnin mat, áfengi, sykur og kaffi. Í sjálfu sér er best að borða aðeins grænmeti, hnetur og ávexti. Hér getur þú lesið um sjö daga hreinsunina sem við blésum til fyrir ekki svo löngu.

Við byrjum á unaðslegum morgunþeytingi, stútfullum af andoxunarefnum, próteini og gleði. Þú getur vel sleppt próteininu en ég æfi fremur stíft þessa dagana og því vil ég hafa prótein í bland við kolvetnin. Athugið að bætiefnin eru alls ekki nauðsynleg en þau auka þó orku og virkni hreinsunarinnar.

Gott er að byrja morguninn á bolla af soðnu vatni með sítrónusafa og engiferbút eða hreinsandi tei. Fersk mintulauf eru einnig afbragð.

1459417608336

Í hádeginu skellum við okkur svo á Nicecream. Þessi bomba inniheldur undraberin acai en þau fást ekki fersk hér á landi svo ég kaupi þau í frostþurrkuðu duftformi. Þau fást einnig frosin en varið ykkur á þeim - þau einu sem ég hef fundið eru í litlum smoothie pökkum og innihalda síróp. Þessi í duftformi eru 100% hrein lífræn ber. Acai ber eru lítil dökk ber, ekki ósvipuð bláberjum en þau innihalda mikið magn steinefna, omega fitusýra og 10 sinnum meiri andoxunarefni en flest önnur ber. Berin vinna gegn streitu og öldrun húðarinnar. Þau innihalda einnig prótein!

NICECREAMfjarki

Í millimál er gott að fá sér grænmeti, svo sem gulrætur eða lárperu með örlitlu sjávarsalti. Eins eru 3 msk af blönduðum hnetum tilvalið snakk sem seðjar vel. Svo er um að gera að koma sem mest af grænmeti í hristingana, til dæmis bæta við grænkáli, gulrót eða agúrku. Ég geri alltaf hristinga frekar en djús til að halda trefjunum inni og drykkirnir metta betur með "hratinu." Þessi melónudrykkur er einnig mikil snilld.

Í kvöldverð hendum við svo í súpergrænan detox mintudrykk. Þessi er mjög góður og mjög hreinsandi!

FotorCreated

 Síðast en ekki síst er það kvöldnaslið. Trópíkal nicecream með kókos, ananas, ástaraldin og mangó. Jummí!!

2016-03-30 16.48.08

Ef ykkur vantar fleiri hugmyndir að drykkjum geti þið skoðað uppskriftir hér!

Uppskriftin

Græni morgunrisinn

Hreinsandi og mettandi drykkur. Hann er vel útilátinn og dugar jafn vel í morgunmat og millimál. Þá er gott að setja millimálsskammtinn í krukku og kippa með sér út í daginn.

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Allt blandað í blender uns kekkjalaust. Bragðgóð og orkumikil máltíð.

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.