Sykurlaust döðlugott

[caption id="attachment_1477" align="alignnone" width="1024"]

Mynd: Íris Ann[/caption]
Ég bauð ykkur að "skora" á okkur hjá EatRVK með því að senda okkur uppáhalds sykruðu uppskriftina ykkar og við myndum "afsykra" hana. Döðlugott var sú fyrsta sem varð fyrir valinu en við birtum uppskrift af slíkri sykurbombu fyrir jól sem var afskaplega vinsæl. Afsykraða týpan tókst merkilega vel og hefur horfið óþægilega hratt úr kökudunknum.



Uppskriftin
Sykurlaust döðlugott
Bragðmiklir og skemmtilegir bitar.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Botn
Millilag - eitthvað af eftirfarandi
Bráð
Aðferð
Leiðbeiningar
Botn
- Döðlurnar eru lagðar í bleyti í sjóðandi heitu vatni í 10 mínútur.
- Vatninu er hellt af og döðlurnar settar í matvinnsluvél ásamt kakó, vanillu, fljótandi kókosolíu og klípu af sjávarsalti.
- Vélin er látin hamast þar til úr verður kekkjalaus karamella.
- Þá er kínóapuffsinu hrært varlega saman við þar til úr verður þykk og falleg blanda.
- Setjið bökunarpappír eða plastfilmu í botninn á kassalaga móti (t.d. eldföstu móti) og setjið í frysti á meðan bráðin er útbúin.
Bráð
- Kakósmjör og hnetusmjör er látið bráðna í potti við vægan hita.
- Þegar smjörið er albráðið fer kakóið, stevían, hunangið/sírópið og saltið út í pottinn. Hrærið vel með gaffli og slökkvið undir.
- Mótið er tekið úr frysti og millilag sett ef vill. Ég notað hnetur, gojiber, kókos og kakónibbur en í raun er fínt að nota bara það sem þú átt. Salthnetur og rúsínur gætu verið gott flipp líka.
- Súkkulaðinu er svo hellt yfir og mótið sett inn í fyrsti í að lágmarki 1 klst.
- Því næst er hægt að kippa gleðiklumpnum upp og skera í mola!
EatRVK · https://eatrvk.is/2016/02/sykurlaust-dodlugott/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
300 dl? 30 lítrar af döðlum? Á þetta að vera grömm?
Laukrétt! Grömm og grínerí! Takk fyrir ábendinguna.
Er det muligt at skrive det på engelsk, ell på en måde så Google translator kan oversætte hvad der står i opskriften
hvað er kínóapuffs
https://www.eatrvk.is/index.php/is/2016/01/28/sukkuladi-kinoakulur/ Sérð það hér. Fæst td í Nettó.
yes i will translate it for you :)
hæ er þetta virkilega 80 gr af kakói í bráðinni ? mér finnst það svo mikið ;)
Hvernig getur eitthvað verið sykurlaust þegar döðlur innihalda 63% sykur?
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.