Þessi kjúklingaréttur er alltaf í miklu uppáhaldi hér á mínu heimili. Hann er bragðgóður og kjúklingurinn verður sérstaklega mjúkur. Það sem er best við þennan rétt er að ég geri alltaf stóra uppskrift af honum og nota svo afgang í pasta daginn eftir, hann er því sniðugur fyrir stór heimili og líka bankabókina.
Pestó kjúklingabringur með fetaosti og furuhnetum - einfaldara verður þetta ekki!!!
2016-05-16 19:03:41
Dúnmjúkur og bragðgóður kjúklingaréttur sem öll fjölskyldan elskar
Innihaldsefni
- 4 bringur
- 1 poki ristaðar furuhnetur
- 1 krukka kóríander pestó
- 1 krukka uppáhalds fetaosturinn ykkar
- salt og pipar
- Parmesan ostur borinn fram með
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 180 gráður
- Skerið bringurnar í lengjur eða um 1-2 sentimetra að breidd
- setjið bringurnar í eldfast mót og hellið pestó yfir
- Takið helminginn af olíunni af fetaostinum og dreyfið rest yfir bringurnar
- Blandið vel saman og setjið inn í ofn og bakið í 30-35 mínútur eða þar til bringurnar eru eldaðar í gegn
- Dreifið furuhnetum yfir þegar rétturinn er tekinn úr ofninum og berið fram með parmesan osti.
Athugasemdir
- Þennan rétt má leika sér mikið með, nota mismunandi ost, pestó og hnetur. Ef það er afgangur sker ég kjúklinginn í bita og set allt saman í pott, bæti smá rjóma saman við og helli yfir gott pasta.
EatRVK https://eatrvk.is/