Ég byrja alla daga á þessum drykk. Kroppurinn blómstar ef hann færi einn grænan á dag. Svo er þetta líka svo bragðgott og fljótlegt. Jummí! Ég gerir gjarnan tvöfalda uppskrift og öll fjölskyldan drekkur þetta á morgnanna.
Græna Bomban
2016-01-31 15:38:52
Innihaldsefni
- 2 dl frosið mangó
- 1/2 vel þroskaður banani
- ½ epli eða pera
- 2 lúkur spínat (má vera frosið)
- 2 cm ferskt engifer
- 1 msk sítrónusafi ef vill
- ½ tsk spirulina ef vill
- 2 dl vatn
- 2 dl epla- og engifersafi
- 2 döðlur
Leiðbeiningar
- Allt sett í blandara með klaka og blandað uns kekkjalaust. Geymst í sólahring í kæli en best er að drekka bombuna strax og finna orkuna flæða um kroppinn.
EatRVK https://eatrvk.is/
Pingback: Ljúffeng eplapæja – Minni sóun | EatRVK