Ásthildur heilsuhjúkka heldur áfram að töfra í Hollandi. Nú deilir hún með okkur bragðmiklum kjúklingarétt sem fer vel með kroppinn. Kíkið endilega á síðuna hennar Áshildar hér.
Kjúklingur með sítrónugrasi
2016-01-04 22:14:39
Innihaldsefni
- 4 kjúklingabringur skornar í bita
- 4 msk tamarisósa eða sojasósa
- 4 msk ferskt kóríander – smáttsaxað
- 2 stór hvítlauksgeiri – pressaður
- 2-3 stilkur sítrónugras (lemon grass) – ystu blöð fjarlægð og innri stilkurinn
- smáttsaxaður
- 1-2 lime - safinn og börkurinn notað – börkurinn raspaður og safinn kreistur
- Sjávarsalt & nýmalaður svartur pipar
- 6-8 grillpinnar ef þú ætlar að grilla bitana
- Þeir eru þá settir í vatn í 10 mín til að forðast að þeir brenni þegar bitarnir eru
- grillaðir.
Leiðbeiningar
- Blandaðu öllu nema kjúklingnum vel saman í skál.
- Bættu þá kjúklingnum við og hrærðu vel saman.
- Settu í ísskáp í a.m.k. 30 mín – flott ef þetta getur legið saman í nokkrar klst. T.d yfir heilan dag eða nótt.
- Ef þú ætlar að grilla bitana þá eru þeir þræddir upp á grillpinnana – en svo er líka hægt að raða bitunum á grind og grilla í ofni.
- Ef grillað – grillið í um 8-10 mín á heitu grillinu og passaðu að snúa pinnunum mjög reglulega við.
Athugasemdir
- Borið fram með fersku grænmeti og svo er æði að nota t.d. grískt jógúrt og gera kalda sósu. Ég geri oft sósu-uppskriftina sem gefin er upp utan á umbúðunum að gríska jógúrtinu frá MS – Gott í matinn.
EatRVK https://eatrvk.is/