Íris Sveinsdóttir hárgreiðslumeistari og vinkona mín bauð okkur Kalla í mat í síðustu viku. Íris var um árabil gift írönskum manni og lærði að elda persnenskan mat eins og innfædd. Þvílík veisla sem manneskjan getur töfrað fram! Persneskur matur er dásamlega góður. Mikið af grænmeti, hvítlauk, túrmerik, jógúrti og framandi kryddum. Maturinn er gjarnan hægeldaður svo mikill tími fer í eldamennskuna en ji minn eini hvað þetta er bragðgott. Ég get eiginlega ekki lýst þessari sturluðu veislu en ef eitthvað þá myndi ég lýsa persneskum mat sem blöndu af grískum og indverskum mat. Stórbrotin skemmtun fyrir bragðlaukana!
Istanbul market í Ármúla 42 selur skemmtileg krydd, osta og brauð sem gaman er að leika sér með í persneskri matargerð. Þeir selja einnig granateplasíróp sem er þó nokkuð notað í persneska kjúklingarétti.
- 2 eggaldin
- 4 geiralausir hvítlaukar
- 100 gr lambagúllas steikt
- 15 valhnetur
- Salt
- Pipar
- Olía
- Smjör
- Túrmerik krydd
- Sítróna
- 2 litlar dósir tómatpúrra
- 1/2 dl vatn
- 1 dós sýrður rjómi
- Radísur
- Fersk minta
- Salat
- Geita eða fetaostur
- Gott flatt brauð
- Afhýðið eggaldinin og setjið í matvinnsluvél ásamt steiktu kjötinu, 2-3 hvítlaukum og 15 valhnetum.
- Setjið blönduna á heita pönnu ásamt olíu og tómatpúrrunni. Bætið vatninu við og látið malla við vægan hita í 30 mín.
- Saltið, piprið, setjið 1/2 tsk af túrmerik og 1 msk af sítrónusafa út í og látið malla í klukkustund.
- Á aðra pönnu eru settar 3 msk af smjöri og heill hvítlaukur sem skorin er í þunnar sneiðar. Steikið við háan hita þar til laukurinn verður stökkur og gylltur.
- Þegar eggaldinkæfan er orðin meyr og dásamleg er henni smurt á flatan disk. Sýrðum rjóma er dreift yfir kæfuna og steikti hvítlaukurinn ásamt smjörinu kemur ofan á.
- Smyrjið á gott brauð eða notið í vefjur!
- Berið fram með góðu flatbrauði, radísum, salati, vorlauk, fetaosti (ókryddaður heill kubbur) og ferskri mintu. Það er líka örugglega æðislegt að setja maukið í vefjur.
Sæl
Lítur frábælega út! Ein spurning, en hvar kemur lambagúllasið inn?
„100 gr lambagúllas steikt“
Það má eyða athugasemdinni hér að ofan, ég las þetta ekki nógu vel fyrst 😀
Njóttu vel elskuleg !