Loksins er komið sumar og þá er ekkert betra en að gera ostabakka með góðum ostum og sultu þegar gestir koma. Þessi sulta er í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni, hún er mikið notuð og á marga vegu. Til dæmis er gott að nota hana í salatdressingu, á fiskinn inn í ofn og sem meðlæti. Úr þessari uppskrift fær maður 6 krukkur svo upplagt er að gefa gestgjöfum þær þegar maður fer í matarboð. Fyrir þá sem eru ekki hrifnir af engifer má alveg sleppa honum, en mér finnst hann dásamlegur í þessari sultu.
Sumarleg engifer- og chilisulta
2016-05-29 21:19:13
Dásamleg sumarsulta sem er góð með öllu.
Innihaldsefni
- 14 stk rauðir chili, fræhreinsaðir og saxaðir
- 3 stk rauðar papríkur, fræhreinsaðar og saxaðar í bita
- 3-5 msk saxaður engifer, ég set 5 skeiðar og vel kúfaðar
- 5 1/2 bolli sykur
- 1 1/2 bolli borðedik
- 4-5 tsk sultuhleypir
Leiðbeiningar
- Chili, engifer og papríka sett í matvinnsluvél og maukað saman, þó ekki of lengi.
- Maukið sett í pott ásamt sykri og ediki.
- Hrærið vel í og látið suðuna koma upp.
- Látið malla við lægri hita í um 10-15 mínútur.
- Ein teskeið af sultuhleypi sett útí í einu og leyft að sjóða saman í um mínútu þar til næsta teskeið er sett útí. Mér finnst best að sigta sultuhleypinn þegar hann er settur í sultuna.
- Gott er að taka appelsínugulu froðuna sem myndast á sultunni af með skeið og henda henni, sultan verður mun betri og fallegri.
- Sultunni hellt í heitar krukkur og látið kólna.
Athugasemdir
- Þessi sulta er dásamleg með ostum, í dressingu á gott kjúklingasalat og til að smyrja yfir fisk og setja í ofn, skreyta svo með ristuðum pistasíum. Ef þið notið sultusykur má sleppa sultuhleypinum.
EatRVK https://eatrvk.is/
Hvað verður til mikið af sultu úr þessari uppskrift? Er aðferðin eins ef hún er t.d. helminguð?
Sæl:)
Þú færð um 5-6 sultukrukkur úr uppskriftinni og já það er eins aðferð þegar hún er helminguð.