Þessi réttur er í miklu uppáhaldi hjá öllum í fjölskyldunni. Hann er einfaldur og tekur ekki mikinn tíma að gera. Gott er að nota afganga í salat daginn eftir ef einhverjir verða. Stjarnan í þessari uppskrift er bbq-tómatsósa sem við erum að smyrja á allt hér á mínu heimili. Sósan er frá Mr. Organic og ég er ekki að grínast þegar ég segi að við höfum keypt okkur um 7 flöskur núna í sumar af þessari dýrðlegu sósu, hún er svo fullkomin með öllu grilluðu, pasta, á pylsur, hamborgara og svo framvegis.
Kjúklingasnitsel með djúsí bbq-sósu
2017-08-11 15:23:28
Innihaldsefni
- 4 stk. kjúklingabringur
- 3 egg
- 3 bollar brauðraspur, ég nota panco rasp
- 1 bolli heilhveiti
- ¼ bolli möluð sesamfræ og meira til skrauts
- salt og pipar
- Sósa
- ½ bolli Reykt tómatsósa frá Mr Organic
- 2 msk. Worcestershire-sósa
- 1 msk. soyja-sósa
- 1 msk. mirin-sósa, er í sushi-deildum í matvörubúðum.
- 1 msk. hunang eða hlynssíróp
- 1 ½ tsk. dijon-sinnep
- ¼ tsk. hvítlauksduft
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn á 180 gráður
- Malið sesamfræin og blandið þeim saman við brauðraspinn og setjið á djúpan disk eða fat.
- Skerið bringurnar langsum svo þið fáið tvö stór stykki úr hverri bringu. Gott er að berja þau aðeins með kjöthamri.
- Saltið og piprið hveitið og setjið á djúpan disk.
- Pískið eggið í skál og setjið til hliðar.
- Veltið fyrst kjúllanum upp úr hveitinu og setjið það svo í eggið og að lokum í raspinn.
- Þegar allar bringurnar eru tilbúnar eru þær steiktar í olíu í djúpri pönnu. Olían þarf að vera um 1 cm að dýpt. Leggið svo kjúllann fyrst á eldhúsrúllupappír og svo á smjörpappír og bakið í gegn í ofninum í 10-15 mínútur. Á meðan kjúllinn er í ofninum er sósan gerð. Auðvitað má steikja hann alveg í olíunni en mér þykir gott að geta sett hann í ofninn, svo ekki er eins mikil bræla og ég get gert allt annað sem fara á með réttinum tilbúið á meðan hann mallar í ofninum.
- Sósa
- Öllu blandað í skál og blandað vel saman, geymist í kæli.
Athugasemdir
- Með þessum rétti finnst mér gott að borða smátt skorið kínakál, kartöflur eða pasta, en það má í raun borða þetta með hverju sem er.
EatRVK https://eatrvk.is/