Þetta síróp er dásamlega einfalt og er gott yfir jógúrt, ísinn, í sódavatn eða í mojito. Hægt er að leika sér með hlutföll og gerð ávexta. Ég hef til dæmis gert þetta með jarðarberjum, basil og límónusafa sem kom mjög vel út.
Rabarbara- og jarðarberjasíróp
- 1 bolli vatn
- 1 bolli sykur
- 1 bolli rabarbari (skorin í bita)
- 1 bolli jarðaber (skorið í bita)
- Sykur og vatn sett í pott og látið sjóða, lækkað undir og bætið rabarbara og jarðarberjum saman við.
- Látið malla í 10-15 mín og hrært reglulega í.
- Takið af hellunni og látið kólna. Setjið grisju í sigti yfir skál og hellið fallega rauðu sírópinu í gegn. Fjarlægið hratið og hellið yfir á fallegar flöskur og geymið í ísskáp.
Ef rabarbari er ekki til er hægt að setja aðra ávexti í staðinn, t.d. hindber.
Rosalega Flott allt saman og get ekki beðið að prófa! ((:>