Ég elska mexíkóskan mat og er eiginlega á því að allt með salsasósu sé gott. Þessi uppskrift er frá Lucas Keller en þessa sósu geri ég reglulega og á oftast inni í ísskáp. Dásamlegt með kjúklingasalati, eggjaköku, taco eða quesadillas, nú eða sem sósa á pizzur sem ég geri mjög oft en þá nota ég tortillakökur sem botn.
Hin eina sanna salsasósa
- 4 stórir tómatar
- 1 hvítlauksgeiri
- 1/2 rauðlaukur
- 1 ferskt rautt (fræhreinsað chili aldin)
- 1/2 ferskt jalapeno – ef þú vilt hafa sósuna sterka (eða 4 sneiðar úr krukku)
- safi úr 1 límónu
- 25 gr kóríander (ein lúka)
- salt og pipar
- Skerið allt hráefnið í bita og fjarlægið fræ, skelina af laukunum og stilka.
- Setjið hráefnið í matvinnsluvél og saxið eftir smekk.
- Saltið og piprið eftir smekk.
Salsasósa er algjörlega fitusnauð og inniheldur mjög fáar hitaeiningar.