Þessi súpa er án allra aukaefna og hentar fræbærlega í hreinsun (detox), handa litlum krílum eða til að frysta og kippa með í vinnuna. Svo er um að gera að nota það grænmeti sem er til í ísskápnum.
Hægelduð papriku- og tómatsúpa
2016-01-14 12:58:02
Serves 2
Innihaldsefni
- 2 rauðar eða gular paprikur
- 8 vel rauðir tómatar
- 1 skarlottlaukur
- 2 hvítlauksrif
- 3 msk olía, t.d. kókosolía
- ½ sæt kartafla
- 3 stórar gulrætur
- 2 msk krydd án aukaefna, t.d. Herb de provence frá Pottagöldrum
- 1 dl fersk basilíka ef vill
- 1-2 dl möndlumjólk ef vill (verður kremaðri)
- 1/2 dl appelsínusafi
- 6 dl soðið vatn
- Salt og pipar eftir smekk
- Toppur: pestó, grasker og lárpera
Leiðbeiningar
- Grænmetið er skolað og skorið gróft og sett í eldfast mót og eldað við vægan hita lengi.
- Ég set það oft á háan hita (250 gráður) í 20 mín og slekk svo á ofninum yfir nótt. Annars við 200 gráður í um klst. eða þar til grænmetið verður brúnleit og lungnamjúkt. Þá er það tekið út og látið kólna.
- Því næst er það maukað með töfrasprota eða blandara ásamt 6 dl af soðnu vatni, basilíkunni, kryddinu og möndlumjólkinni.
- Ef þú vilt þynna súpuna setur þú meira vatn.
- Súpan er borðuð heit og toppuð með einni msk af pestódressingu, 1 tsk af graskersfræjum og vænni sneið af lárperu.
EatRVK https://eatrvk.is/
Pingback: Detox planið í heild sinni | EatRVK